Þessi frétt er tvímælalaust áfall fyrir mig og aðra dygga stuðningsmenn þess að konur um heim allan gangi í G-strengs nærbuxum (eða öðrum kosti í engum nærbuxum).
Að sama skapi hljóta margir harðkjarna femínistar að gleðjast því hér fá þær afsökun á silfurfati, en það hefur aldrei fyrr verið nein augljós ástæða fyrir því að konur ættu að ganga í einhverju öðru en G-streng (óþægindi teljast ekki með).
Við G-strengs aðdáendur þurfum þó ekki að örvænta því þar til gert eldvarnarteppi er víst sérstaklega hannað til að slökkva elda á eldavélinni og hentar mun betur en nærbuxur í yfirstærð. Ef þú, lesandi góður, veist um konu sem gengur um í svona sirkús-nærbuxum (eins og ég kýs að kalla það) þá er tilvalið að færa henni saman í pakka, eldvarnarteppi og G-streng.
Góðar stundir :D
![]() |
Eldur slökktur með stórum nærbrókum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 2.1.2008 | 17:23 (breytt kl. 17:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef oft velt því fyrir mér hvort besta refsingin fyrir ungmenni væri niðurlæging á almannafæri. Til dæmis væri hægt að setja upp svona tening úr plexigleri í miðbænum. Þar inni væru þessir drengir látnir dúsa á nærfötunum í nokkra daga, almenningi til sýnis. Einnig væri hægt að vera með rassskellingar á sunnudögum. Fjölskyldufólk gæti þá skellt sér í miðbæinn til að sjá þegar ódæl ungmenni væru rassskellt opinberlega, öðrum ungmennum til varnaðar!
Fleiri hugmyndir?
![]() |
Krotað á veggi fjölda húsa í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 2.1.2008 | 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Jæja... þá er það búið. Það var tekið hraustlega á því um jólin, bæði í veisluföngum og í hvíld. Svo mikið var afslappelsið að ég nennti ekki einu sinni að blogga og væla yfir því sem fór í taugarnar á mér! :)
Nýtt og spennandi ár framundan og vil ég gjarnan nota tækifærið og óska þeim sem mig þekkja (og auðvitað öllum öðrum líka) gleðilegs nýs árs - takk fyrir hið liðna... (kannski tek ég einhverntíman í ellinni upp á því að senda jólakort og sms-jóla og áramótakveðjur, en þangað til læt ég svona rafrænar internetyfirlýsingar duga !)
Tryggvi er spenntur fyrir nýju ári - strengi þó engin heit - þarf þess ekki!
Bloggar | 2.1.2008 | 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 2. janúar 2008
Færsluflokkar
Bloggvinir
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar